11.11.2008 | 06:21
... með tár á hvarmi og bros í öðru munnvikinu...
... kveð ég í kvöld stóra og merkilega konu.
Katla mín dó um daginn eftir erfiða baráttu við krabbamein.
Ég kynntist Kötlu árið 1992, og gerði mér enga grein fyrir því þennan fallega haustdag í lok september, að þarna yrðu vatnaskil í mínu lífi. Hafði hreint enga hugmynd. Hún kenndi mér að lifa upp á nýtt, hún kenndi mér að þykja vænt um sjálfa mig, hún kenndi mér að bera virðingu fyrir sjálfri mér, hún kenndi mér að standa keik þegar boðaföllin gengu yfir. Hún kenndi mér svo margt og allt af því var fallegt. Hláturinn hennar ómar enn í huga mér, hnyttin tilsvör bergmála enn í kollinum á mér, og geislarnir hennar umlykja ennþá hjarta mitt. Mér er enn minnisstætt þegar ég byrjaði að sauma bútateppi, og hún hristi höfuðið yfir því að ég ætlaði að sauma teppi í höndunum - og það úr PAPPA!!!!Ég er enn að sauma þetta teppi. Það gengur misvel, en það mjakast. Og ég hugsa um hana í hvert skipti sem ég tek það upp.Ég gleymi heldur aldrei sögunni af því þegar hún bakaði ástarpungana fyrir manninn sinn, austur á landi. Hún BAKAÐI þá sko í ofninum!!! Það var dásamlegt að heyra hana segja þá sögu.
Ég hafði ekki reglulegt samband við Kötlu gegnum árin en alltaf hittumst við öðru hvoru, og ég var minnt á hvað mér þykir óendanlega vænt um þessa stóru konu, og hvað hún hafði mikil áhrif á líf mitt. Síðast hitti ég Kötlu í Hagkaup í vor sem leið. Hún var að spóka sig með ömmubarninu, ég var að versla á örverpið, með frumburðinn og tengdadótturina í fylgdarliðinu. Við fórum að spjalla í röðinni við kassann, hvað væri að frétta og hvernig gengi - þetta dæmigerða spjall um daginn og veginn sem ekkert skilur eftir sig. Ég spurði hvernig hún hefði það, hún svaraði bara nokkuð gott fyrir utan veikindin. Ég spurði hvaða veikindi, og hún stóð við hliðina á mér - enn jafn geislandi og alltaf - full æðruleysis og sáttar, og sagði: Ég er að deyja úr krabba, og er bara að njóta síðustu viknanna og mánaðanna.
Ég sagði ósköp fátt. Hvað er svo sem hægt að segja. Það sem ég sagði hins vegar ekki var það sem skipti máli. Ég sagði henni ekki hvað mér þætti undurmikið vænt um hana. Ég sagði henni ekki hvað ég ætti henni mikið að þakka. Ég þakkaði henni ekki fyrir lífgjöfina um árið. Ég sagði henni ekki að ég hugsaði til hennar á hverjum degi. Ég sagði henni að mér þætti vænt um hana, og að mér þætti gott ef hún vildi hitta mig yfir kaffibolla við gott tækifæri. Það tækifæri kom ekki. Og hér sit ég - með allt það sem ég ætlaði að segja henni seinna - og brosi og græt.
Frá þessum vordegi hef ég hugsað margt upp á nýtt. Ég hef tekið fullt af erfiðum ákvörðunum. Ég hef líka gefið áfram það sem Katla gaf mér. Það er trúlega besta leiðin sem ég á til að segja henni og sýna hvað hún var mér mikils virði, og hvað ég er henni þakklát. Hvað ég er lánsöm að hafa fengið að vera henni samferða, þó sú ferð hafi verið stutt. Ég er enn að gefa áfram það sem hún gaf mér. Og ég held áfram að hugsa til hennar á hverjum degi. Held áfram að þykja undurmikið vænt um hana. Og held áfram að þakka henni lífgjöfina í huga mér.
Og heyri í kollinum til hennar.
Takk fyrir allt Katla mín.
Mig setur hljóða.


halkatla
annaragna
blogger
baldvinj
beggita
skralli
bjarnihardar
brv
bryndisr
brandarar
bifrastarblondinan
saxi
skelfingmodur
gummisig
gislisigurdur
hallarut
veravakandi
helgamagg
skjolid
little-miss-silly
boi
jackylynn
jonaa
ksh
kolgrima
bubot
kiddip
hjolaferd
daudansalvara
birtabeib
larahanna
skandalan
corvo
ragnhildur
totally
bjornbondi99
scorpio
u4ea
ormurormur
omarragnarsson
agny
toffarinn
brahim
gattin
maggadora
Athugasemdir
Birna Dis Vilbertsdóttir, 11.11.2008 kl. 10:36
Ragnheiður , 11.11.2008 kl. 10:42
Marta Gunnarsdóttir, 11.11.2008 kl. 21:21
Helga Magnúsdóttir, 11.11.2008 kl. 21:28
Ég samhryggist
Díana (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 08:28
Sporðdrekinn, 13.11.2008 kl. 21:16
Yndisleg frásögn, falleg, einlæg - og svo forláta elskulega skrifuð.. Alltaf verðum við ríkari af að njóta samvista og kynna við Öndvegisfólkið. Og Katla varð orsakavaldur, gaf þér annan sjónarhól... ný viðhorf að byggja á...
Ég votta þér hluttekningu mína ... og gleðst yfir að þessi yndislega kona skuli hafa verið í lífi þínu, elsku Berglind mín.
Helga Ág.
Grísli þinn - alltaf á brúnni
Helga Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 10:20
Samhryggist þér frænka
Maður heldur alltaf að maður hafi nægan tíma en svo er nú ekki alltaf en þú getur alltaf huggað þig og yljað þér við góðu minningarnar og verið þakklát fyrir að hafa átt viðkomandi að vini. Gangi þér svo bara allt vel kæra. Stórt knús til þín og þinna.
Agný, 9.12.2008 kl. 02:34
Samúðarkveðja
Elísabet Markúsdóttir, 19.12.2008 kl. 13:43
Innilegar samúðarkveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.12.2008 kl. 01:12
Sendi þér samúðar kveðjur.
Ljós til þín
Anna Ragna Alexandersdóttir, 11.1.2009 kl. 01:03
Þó að þetta sé mög sorglegt, þá lýður mér einhvernveginn vel eftir að hafa lesið þetta. Þetta er svo fallega skrifað já þér og sýnir hvað lífið getur verið virkilega fallegt og gott þrátt fyrir alla þá erfiðleika sem við lendum í á æfinni.
Innilegar samúðarkveðjur
Rafn
Rafn Haraldur Sigurðsson, 28.1.2009 kl. 16:50
Anna Ragna Alexandersdóttir, 30.1.2009 kl. 00:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning