...merkileg þögn...

... er um fréttir af kynferðisbrotamönnum hér á mbl.is meðan vísismenn fjalla um þau.

Ef smellt er hér má lesa viðtal við Pál Winkel fangelsismálastjóra um hvers vegna það sé illskárri kostur að hleypa barnaníðingum út á reynslulausn, en hér má lesa viðtal við Braga Guðbrandsson, þar sem honum þykir ekki stætt á því að við hleypum gangandi tímasprengjum út í þjóðfélagið. Kannski ekkert nýtt þarna á ferðinni, en mér þykir þó forvitnilegt að enn ein ríkisrekna nefndin sitji á rökstólum við að ræða þessi mál. Vonandi kemur eitthvað vitrænt út úr þeim umræðum, og við getum farið að bera okkur saman við aðrar siðmenntaðar þjóðir í þessum málaflokki. 

En eftir situr spurningin um hversvegna ekki er fjallað um þetta á mbl.is. Skyldi það hafa eitthvað að gera með þá staðreynd að Dabbi Kóngur situr í bílstjórasætinu í kreppumálum þjóðarinnar og ríkisupptöku eigna, og eftir höfðinu dansi limirnir? Ja, kona spyr sig...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Uuuuuuu......ég hreyfi engum mótmælum við þessari umsög! 

Aðgerðir í þessum málaflokki eru bráðnauðsynlegar og ég er alveg á máli Braga! 

Það er samt spurning hvort maður nennir einn ganginn enn að fara eitthvað að vona......

Fysið (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 18:51

2 Smámynd: pirrhringur

Ég segi bara það sama og fysið...

pirrhringur, 4.10.2008 kl. 15:20

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og yndislegar kveðjur inn í nýja viku

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.10.2008 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og tveimur?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband