27.9.2008 | 16:15
...sorglegt en satt...
... og þetta er alveg í anda við síðustu færslu hjá mér. Báðir mínir strákar hafa verið þolendur eineltis í skóla, en skólayfirvöld í Hafnarfirði hafa verið treg til að viðurkenna vandann. Það var ekki fyrr en örverpið lá í jörðinni á skólalóðinni og aðvífandi kom ungur strákur í níunda bekk þá, sem eitthvað fór að gerast hér. Og það er gaman að segja frá því að sá hittingur varð að verkefni sem var fjallað um í Umhyggju og víðar, og fékk einhver verðlaun - ef mig misminnir ekki mikið - en ég hef lítið heyrt af því undanfarin ár samt. Verkefnið var "Skólavinur" og byggðist upp á því að krakkar í níunda og tíunda bekk voru "vinir" litlu krakkanna, fengu jafnvel að taka þau úr tíma til að vera aðeins með þeim, og þetta gerði kraftaverk fyrir litlu púkana.
Ekki nóg fyrir örverpið mitt, en vonandi hefur þetta nú gagnast einhverjum öðrum það mikið að vandræði og vesen heyri sögunni til!
En sú sorglega staðreynd að þetta skuli enn vera íslenskur raunveruleiki, styður enn frekar við hafragrauts-kenninguna mína. Er ég ennþá ein um það? Ja, kona spyr sig...
|
Ætlaði að pynta þau og drepa |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Barnaverndarmál, Blessuð geðveikin | Facebook



halkatla
annaragna
blogger
baldvinj
beggita
skralli
bjarnihardar
brv
bryndisr
brandarar
bifrastarblondinan
saxi
skelfingmodur
gummisig
gislisigurdur
hallarut
veravakandi
helgamagg
skjolid
little-miss-silly
boi
jackylynn
jonaa
ksh
kolgrima
bubot
kiddip
hjolaferd
daudansalvara
birtabeib
larahanna
skandalan
corvo
ragnhildur
totally
bjornbondi99
scorpio
u4ea
ormurormur
omarragnarsson
agny
toffarinn
brahim
gattin
maggadora
Athugasemdir
Ég man þá tíð fyrir nokkrum árum síðan að ég var akandi í bifreið minni, þegar ég sá 2 stráka líklega 12-13 ára vera að sparka í og berja smápjakk sem lá á götunni, miklu minni og virtist yngri en þeir - og þessir, mun stærri, voru tveir. Ég skynja einelti þegar ég sé það vegna fyrri eigin reynslu. Ég stoppaði bílinn og fór út og hljóp í áttina að þeim. Þá flúðu þessir tveir og ég náði öðrum þeirra og greip í hann. Sá reyndi að slá til mín til að losna. Ég skellti honum á götuna og hélt honum niðri til að hafa hann þar á meðan ég talaði við hann, og reyna að fá hann ofan af svona háttsemi.
Hann fór strax að grenja og æpti á mig: "Láttu mig í friði, hvað hef ég gert þér!" Ég spurði hann: "Hvað gerði litli strákurinn þér sem þú varst að berja?" Svar: "Það kemur þér ekkert við. Vert þú ekkert að skipta þér að þessu helvitis ræfillinn þinn. Ég hef ekkert gert þér. Þú ert aumingi! Láttu mig í friði." (!?!?!?!?)
Þeir eru sjálfir ekki miklar hetjur þessir ræflar og tilvonandi handrukkarar, þegar annar stærri kemur til skjalanna. Hitt er athyglisvert, að þessi drengur sem var að berja þennan litla, í slagtogi við annan, virtist ekkert sjá athugavert að lemja sér minni máttar, en fannst það vera hin mesta óskammfeilni af mér að skipta mér að þessu. Ósanngirni í hæsta lagi - að vera truflaður við þessa iðju sína!
Ég tel að einelti sé helsti orsakavaldur haturs út í umhverfið og þjóðfélagið sem orsakar óútskýranlega og að virðist ástæðulausa glæpi svo sem tilgangslausar árásir með vopnum svo sem bareflum, hnífum, eða fjöldamorð í skólum og (fyrrverandi) vinnustöðum með skotvopnum eins og í Finnlandi, Bandaríkunum og fleiri löndum Einelti, hvort sem er framið í skóla af skólasystkinum, af kennurum (sem er algengara en fólk vill viðurkenna, það þekki ég af eigin reynslu), af fjölskyldumeðlumum svo sem eldri bóður eða systur - og það sem er langverst af öllu (og ekki má tala um og lögreglan gerir ekkert í ef kært er í málinu), einelti sumra foreldra á börnin sín. Þá er ég ekki endilega að tala um líkamlegt, heldur einnig og sér í lagi andlega kúgun og ofbeldi. Oft vita foreldrar ekki betur, vegna eigin uppeldis frá árum áður hjá sínum eigin foreldrum. Telja einfaldlega að svona eigi þetta vera, sbr., almennt heimilisofbeldi.
Uppreisnarseggurinn@gmail.com (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 16:54
Hafragrautur var það heillin!
Sporðdrekinn, 27.9.2008 kl. 17:17
Takk fyrir þetta uppreisnarseggur! Já, eineltið leynist víða, og yfirleitt ekkert gert í því, einhverra hluta vegna. Við erum - sem þjóðfélag - enn á því stiginu að stinga höfðinu í sandinn (eða kannski hafragrautarskálina?) og neita að horfast í augu við staðreyndir. Við fáum nett kast yfir fjöldamorðum í skólum víðsvegar um heiminn, en segjum svo: Guði sé lof að við búum á Íslandi, þar sem svona lagað gerist ekki! Einmitt vandinn í hnotskurn, við teljum okkur trú um að það séu engin vopn í umferð á Íslandi, og enn bendi ég á það að þó eitthvað hafi ekki gerst áður, getur það samt alveg gerst aftur!!!! En það er sjálfsagt að "haardera" þetta eins og svo margt annað (las um daginn sko að það að "haardera" væri að aðhafast ekkert í málinu) og þá verður þetta ekki napur íslenskur raunveruleiki innan skamms!
Rekur nú minni til einhverrar umræðu fyrir einhverjum árum síðan um að þó klámvæðingin væri farin að hafa áhrif á börn og unglinga erlendis, þá væri það ekki keisið hér! Einhver sem hefur lesið færsluna ...íslenskur raunveruleiki í dag... ????? Æ rest mæ keis! Takk fyrir innlit og gott komment!!!
Berglind Nanna Ólínudóttir, 27.9.2008 kl. 17:57
Já Sporðdreki, hafragrautur var það heillin, og það varla grautur, meira svona lapþunnt drasl eitthvað!!!! Takk fyrir innlit og komment!!
Berglind Nanna Ólínudóttir, 27.9.2008 kl. 17:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning